Fræðslukvöld fyrir alla foreldra Ísaksskóla
Foreldrafélagið hefur verið boðið fyrirlesturinn „Ber það sem eftir er" okkur að kostnaðarlausu.
Fyrirlesturinn fer fram í Ísaksskóla þann 15.apríl kl: 20:00
Efni fyrirlestursins er:
Fræðsla fyrir foreldra um öryggi barna í stafrænum samskiptum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum ganga nektarmyndir af íslenskum börnum manna á milli á netinu, en lögreglunni hefur reynst erfitt að bregðast við vandamálinu. Dreifingin er stjórnlaus og netið gleymir engu. Sexting (að skiptast á nektarmyndum) meðal barna og unglinga eykur á vandann. Rík þörf er fyrir vitundarvakningu – og upplýstir foreldrar eru besta forvörnin. Ef ekkert er aðhafst gætu fleiri börn lent í því að vera ber það sem eftir er á netinu.
Allir foreldrar eru hvattir til að mæta á fyrirlesturinn enda mikilvægt að kynna sér áskoranirnar sem fylgja tækninýjungum, jafnvel þótt börnin séu enn ung að árum. Fræðslan er samsett af höfundi verðlaunamyndanna „Fáðu já!“ og „Stattu með þér!“ sem notaðar eru í kennslu í grunnskólum landsins. Styrktaraðili átaksins er Vodafone.
Stjórn foreldrafélags Ísaksskóla