Framkvæmdir við Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forráðamennUm helgina hefjast framkvæmdir við Ísaksskóla. Skipta á um þakklæðningu, rennur og fráfallsrör á gömlu byggingunni. Áætlaður framkvæmdatími er 2-3 vikur en eins og maðurinn sagði þá getur það dregist ef veðráttan verður óhagstæð. Vinnupallarnir verða reistir norðan við bygginguna svo raskið verði sem minnst inni á lóðinni. Sunnan megin verður reist girðing og öryggi barnanna okkar verður í fyrirrúmi. Allir inngangar verða óbreyttir á meðan á framkvæmdum stendur.Góða og gleðilega helgi,starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top