Gleðilegt sumar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Við viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna á skólaslitin. Það var tilhlökkun í loftinu og vonandi fallegt og hlýtt sumar handan við hornið.

Skrifstofa Ísaksskóla verður lokuð frá og með miðvikudeginum 14. júní og opnar aftur miðvikudaginn 16. ágúst. Ef á þarf að halda er hægt að senda póst á lara@isaksskoli.is 

Sumarskólinn verður starfræktur til fimmtudagsins 20. júlí.

Fyrsti skóladagurinn á nýju skólaári hjá 6-9 ára nemendum verður þriðjudaginn 22. ágúst og fyrsti skóladagurinn hjá 5 ára nemendum verður föstudaginn 26. ágúst.

Öll 5 ára börn verða boðuð í viðtal í vikunni á undan og kynningafundur fyrir foreldra 5 ára barna verður fimmtudaginn 24. ágúst kl. 17:30.

Kynningafundur fyrir foreldra 6-9 ára verður fimmtudaginn 31. ágúst kl. 17:30.

Foreldrar og forráðamenn fá sendan póst frá okkur um miðjan ágúst með ýmsum upplýsingum um skólastarfið 2017-2018.

Með sumarkveðjum, starfsfólk Ísaksskóla

20170607_133420 (Small) 20170607_132921 (Small) 20170607_133016 (Small) 20170607_133035 (Small)

Scroll to Top