Haldið upp á hundrað skóladaga í Ísaksskóla.

Í dag hafa nemendur í 5 ára verið í samtals hundrað daga í Ísaksskóla.  Til að halda upp á þessi merku tímamót bjuggu nemendur til kórónur og fóru í skrúðgöngu um skólann.

Í salnum var búið að koma upp tveimur stöðvum. Á stöðvunum var að finna tíu tegundir af alls kyns góðgæti.  Nemendur fengu poka og settu í þá tíu stykki af hverri tegund  og náðu því að næla  sér í 100 stykki af alls konar góðgæti.

Nemendur fengu líka að bragða á 100 daga súkkulaðiköku og rann hún ljúflega niður.

 

Scroll to Top