Haustfagnaður Foreldrafélags Ísaksskóla

Heil og sæl kæru vinir,

Næst komandi laugardag, 9. september, býður Foreldrafélag Ísaksskóla nemendum og fjölskyldum þeirra á haustfagnað á skólalóðinni á milli kl 10:30-12:30.

Í boði verða hoppukastalar, veltibíllinn, andlitsmálning, léttar veitingar fyrir börn og foreldra, ljúf tónlist og almenn skemmtilegheit.

Vinsamlega skráið barnið ykkar í meðfylgjandi hlekk svo hægt sé að áætla veitingar.

Ennfremur vantar okkur hjálparhendur fyrir, á meðan og í tiltekt – vinsamlega bætið við í skráningarskjalið tölvupóstfang og jafnvel símanúmer

Hlökkum til að sjá ykkur – veðurspáin er björt og mild enn sem komið er 🙂

Bestu kveðjur

Foreldrafélag Ísaksskóla

Skráningarhlekkur:  https://goo.gl/forms/xuQuPOuDX4vx4fup1

Scroll to Top