Kæru foreldrar fimm ára barna.
Íslensk börn hefja fæst reglulegt nám fyrr en í sex ára bekk. Síðustu áratugi hefur nokkuð stór hópur foreldra valið að senda börn sín til náms ári fyrr í 5 ára deild sem starfrækt er við Skóla Ísaks Jónssonar.
Ef þið hafið áhuga á að senda barnið í lítinn skóla þar sem unnið er af metnaði og umhyggju þá er vert að hafa okkur í huga.
Það er stór stund þegar börnin okkar setjast á skólabekk í fyrsta sinn. Í ár eru 93 ár frá því að Skóli Ísaks Jónssonar var stofnaður. Hefur skólinn alla tíð sérhæft sig í að sinna þörfum barna í yngstu bekkjum grunnskólans. Skólinn er opinn öllum börnum á höfuðborgarsvæðinu óháð búsetu.
Ísaksskóli byggir á aga og umhyggju. Einkunnarorð skólans „Starf – Háttvísi – Þroski – Hamingja“ eru í hávegum höfð. Verkefni barnanna eru krefjandi en alltaf skemmtileg, hvort sem um er að ræða lestrarkennslu eða aðrar greinar. Skólinn setur sér líka metnaðarfyllri markmið en venja er t.d. varðandi lestrarkennslu sex ára barna. Í Ísaksskóla er leikur að læra enda sýna rannsóknir að nemendur skólans standa að jafnaði vel að samræmdum prófum. Jafnframt hefur komið í ljós að foreldrar barna í Ísaksskóla eru ánægðari með skólastarfið en gengur og gerist samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar meðal foreldra nemenda í grunnskólum Reykjavíkur 2012.
Sólbrekku ( 5 ára ) og Sunnuhlíð ( 6-9 ára ) köllum við deildirnar þar sem krakkarnir dvelja eftir að skóladegi lýkur uns þau eru sótt. Þessi lengda viðvera og skólastarfið sjálft eru skipulega tengd saman í eina heild. Í sama anda er unnið að samþættingu skólans við ýmiss konar tómstundastarf.
Með þessu aukum við lífsgæði bæði foreldra og barna og gefum þeim aukinn tíma til samvista eftir að skóladegi lýkur.
Börn eru einstök og sérstök. Þroski, vellíðan og menntun hvers barns er markmiðið hjá öllu starfsfólki skólans. Það leggur metnað sinn í að þjálfa með nemendum vönduð og öguð vinnubrögð og sterka sjálfsmynd hvort sem unnið er sjálfstætt eða í hópi.
Ísaksskóli er lítill skóli sem stendur á gömlum merg. Hann er nútímalegur en nýtir jafnframt það besta úr þeim ríku hefðum sem byggst hafa upp innan veggja hans síðan hann tók til starfa árið 1926.
Ég skora á þig að hafa samband við okkur í síma 553 25 90, í gegnum netfangið siganna@isaksskoli.is eða hér á vefnum okkar www.isaksskoli.is til að fræðast frekar um Ísaksskóla, skipuleggja heimsókn til okkar eða bara ræða málin.
Með bestu kveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir,
skólastjóri Skóla Ísaks Jónssonar.