Ísaksskólaleiðin – nýtt tækifæri í Kópavogi, starfsemi Ísaksskóla í Reykjavík heldur áfram óbreytt
Ísaksskóli hefur á undanförnum misserum rætt möguleikann á því að koma að uppbyggingu nýrrar skólastarfssemi í Kópavogi. Verið er að móta leið til að miðla þeirri reynslu, starfsháttum og hugmyndafræði sem hefur mótað Ísaksskóla í rúma öld.
Við viljum upplýsa um stöðuna á skýran hátt og leggja áherslu á nokkur lykilatriði:
Starfsemi Ísaksskóla í Reykjavík heldur áfram óbreytt
Ísaksskóli starfar áfram í sínu núverandi húsnæði í Reykjavík. Engin áform eru uppi um flutning eða breytingar á starfsemi skólans hér. Þetta er og verður áfram okkar kjarnastarf.
Ísaksskólaleiðin – möguleiki á nýjum skóla í Kópavogi
Verkefnið sem nú er til skoðunar getur, ef vel gengur, orðið að því að Ísaksskóli reki nýjan skóla í Kópavogi, með nýju skólasamfélagi og byggður á þeim gildum og starfsháttum sem einkenna Ísaksskóla.
Með öðrum orðum: ef nýr skóli verður að veruleika verður hann viðbót — ekki staðgengill fyrir núverandi Ísaksskóla.
Markmið verkefnisins
Í 100 ára sögu Ísaksskóla hefur orðið til hér innanhúss mikil reynsla og fagmennska sem við teljum mikilvægt að nýta í þágu menntunar barna víðar. Ísaksskólaleiðin er tækifæri til að þróa nýtt skólasamfélag með skýra, mótaða og jákvæða menntastefnu. Við munum halda áfram að upplýsa foreldra, starfsfólk og samfélagið um framvindu mála þegar meira liggur fyrir og ákvarðanir verið teknar.
Markmið okkar er, og verður alltaf, að vinna faglega og af yfirvegun að því að efla menntun barna.

Skólastjóri og stjórn skólans á síðasta ársfundi skólans vorið 2025.

