Ísaksskóli festir varanlegar rætur í Bólstaðarhlíð á 100 ára afmælisári

Í dag, 19. október, voru undirrituð afsal og önnur lokagögn vegna kaupa Ísaksskóla á fasteigninni að Bólstaðarhlíð 20. Þar með er skólinn aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem verið hefur heimili skólastarfsins um áratuga skeið og hefur tryggt starfseminni traustan grunn til framtíðar.

Kaupin byggja á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011 og markar þessi undirritun mikilvæg tímamót í sögu skólans. Sérstaklega ánægjulegt er að þessum áfanga skuli vera náð á 100 ára afmælisári Ísaksskóla.

Frá stofnun árið 1926 hefur Ísaksskóli lagt áherslu á metnaðarfullt nám, sterkt skólasamfélag og náið samstarf við nemendur og fjölskyldur þeirra. Á þeim hundrað árum sem liðin eru hefur skólinn skapað sér sérstakan sess í íslensku skólasamfélagi og verið vettvangur náms, vaxtar og vináttu fyrir kynslóðir nemenda.

Eignarhald á húsnæðinu styrkir stöðu skólans enn frekar og skapar aukið svigrúm til að þróa starfsemina áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið í Bólstaðarhlíð. Með kaupunum hefur Ísaksskóli tryggt að starfsemi hans geti áfram dafnað á þeim stað sem tengst hefur sögu skólans svo náið.

Það er við hæfi að á sama tíma og skólinn fagnar hundrað ára afmæli sínu skuli tekist að tryggja framtíðarheimili starfseminnar. Um leið og Ísaksskóli lítur með þakklæti yfir farinn veg er horft af festu og bjartsýni til framtíðar.

Ísaksskóli vill færa Reykjavíkurborg þakkir fyrir gott samstarf í gegnum tíðina og öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að byggja upp það öfluga skólasamfélag sem skólinn er í dag.

Með undirritun dagsins hefur nýr kafli hafist í sögu Ísaksskóla. Ræturnar standa traustar í Bólstaðarhlíð og framtíðin blasir við.

Scroll to Top