Ísaksskóli hefur hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Viðurkenningin er staðfesting á traustum rekstri, fjárhagslegum stöðugleika og ábyrgri stjórnun skólans.
Creditinfo veitir árlega viðurkenningu til fyrirtækja og stofnana sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, stöðugleika og árangur í rekstri. Við matið er meðal annars horft til rekstrarafkomu, eiginfjárstöðu og fjárhagslegs stöðugleika undanfarinna þriggja ára. Þetta er níunda árið í röð sem skólinn fær þessa viðurkenningu.
Viðurkenningin er okkur í Ísaksskóla sérstakt ánægjuefni, enda er traustur og ábyrgur rekstur mikilvæg forsenda þess að hægt sé að halda úti öflugu og metnaðarfullu skólastarfi til framtíðar.
Árið 2026 hefur verið viðburðaríkt í sögu Ísaksskóla. Skólinn fagnar 100 ára afmæli sínu og hefur jafnframt fest kaup á húsnæði sínu við Bólstaðarhlíð 20. Viðurkenning Creditinfo er því enn einn ánægjulegur áfanginn á þessu merka tímamótaári.
Ísaksskóli hefur í heila öld lagt áherslu á vandað skólastarf, metnaðarfulla kennslu og farsæld nemenda. Traustur rekstur skapar mikilvægar forsendur til að varðveita þá sérstöðu sem einkennir skólann og halda áfram að þróa skólastarfið til framtíðar.
Við erum stolt af þessari viðurkenningu og þökkum öllu því góða fólki sem hefur lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og árangurs Ísaksskóla í gegnum árin.
Nánar má lesa um viðurkenninguna á vef Creditinfo.


