Íslandsmeistari í Ísaksskóla

Börnunum okkar í Ísaksskóla er margt til lista lagt og það er ekki amalegt að fá að taka þátt í uppvexti slíkra öndvegis ungmenna og þeirra sem stunda hér nám og leik við skólann. 

Við samgleðjumst þeim af öllu hjarta í litlu og stóru sigrum lífsins og hún Katrín Jana í 7 ára bekk vann sannarlega stórsigur um nýliðna helgi þegar hún varð hvorki meira né minna en Íslandsmeistari í samkvæmisdönsum bæði latin- og ballroom dansi.

Ísaksskólahjarta okkar allra berst að sjálfsögðu um af stolti af þessari flottu stelpu og við óskum henni innilega til hamingju með frábæran árangur!

 

IMG_33496583351908

Scroll to Top