Janúar í Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn og nemendur.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samstarfið og samveruna á því gamla.

Framundan eru skemmtilegir skóladagar og við hlökkum til að hitta ykkur endurnærð eftir fríið á morgun, miðvikudaginn 4. janúar kl. 8:30. Sólbrekka opnar kl. 7:30 eins og venjulega.

Föstudaginn 6. janúar syngjum við áramótasöngva í söngstund á sal.

Þorragleði verður föstudaginn 20. janúar. Þann dag mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Í söng á sal verða þorralög sungin og eftir söngstund fá börnin að smakka þorramat.

Þemadagar verða þriðjudaginn 24., miðvikudaginn 25. og fimmtudaginn 26. janúar.

Mót hækkandi sól,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top