Janúar í Ísaksskóla

Kæru foreldrar/forsjáraðilar

Gleðilegt nýtt ár 2023! Um leið og við þökkum fyrir allar góðu stundirnar þá hlökkum við til enn fleiri gefandi stunda með ykkur á nýja árinu.

Skipulagsdagur verður þriðjudaginn 3. janúar. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag.

Fyrsti skóladagurinn á nýju ári er miðvikudagurinn 4. janúar kl. 8:30 og morgungæslan verður á sínum stað.

Skólaleikar verða miðvikudaginn 11. janúar. Sóley Ósk, Matti Guðmunds og Kiddi eru búin að skipuleggja ýmsar keppnisgreinar/þrautir sem henta öllum. Skólaleikarnir verða innanhúss.

Þorragleði verður föstudaginn 20. janúar. Þann dag mega allir koma í lopapeysu eða þjóðlegum klæðnaði. Í söng á sal verða þorralög sungin og eftir söngstund fá börnin að smakka þorramat.

Mót hækkandi sól,
starfsfólk Ísaksskóla