Það er óhætt að segja það ríkir mikil gleði og kátína á skólalóðinni þessa dagana, enda mikið tilefni til. Á föstudaginn sl. var tekið í notkun nýtt leiktæki sem hefur fengið nafnið Köngulóin. Þess hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu, enda börnin fylgst með uppsetningunni alla vikunna og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar vinnugirðingin var höfð á brott og tækið opnað klifuróðum krökkum.
Það hefur verið mikið að gera hjá henni Móu okkar undanfarna daga sem hefur hlotið nafnbótina Köngulóarstjóri og tímavörður. Börnin hafa verið til fyrirmyndar í að mynda raðir hjá Móu sem hleypir börnunum í köngulónna í hollum svo engin fari sér að voða meðan mesta spennan er í loftinu.