Kór Ísaksskóla syngur í Háteigskirkju á sunnudag kl. 11:00

Komið þið sæl og blessuð.

Kór Ísaksskóla, yngri og eldri deild (7, 8 og 9 ára) syngur í fjölskylduguðsþjónustu í Háteigskirkju á næstkomandi sunnudag (23. nóv) klukkan 11:00 

Prestur er Helga Soffía Konráðsdóttir.  Að þessu sinni býður kirkjan gestum sínum í súpu og brauð að lokinn messu.

Verið öll velkomin í þessa fjölskyldustund.  
Gaman að sjá sem flest kunnugleg andlit 🙂  Kórarnir bíða spenntir að fá að láta ljós sitt skína!

Bestu kveðjur, Ása kórstjóri

Scroll to Top