Lautarferð á morgun

Kæru foreldrar/forráðamenn

Á morgun, þriðjudaginn 3. júní, verður farið í hina hefðbundnu lautarferð (6 ára bekkirnir eru á leið í sveitarferð á sama tíma).

Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 og komið til baka um hádegið. Nemendur koma með sparinesti og röradrykk að heiman í litlum bakpoka eða tösku. Ekki má koma með sælgæti eða gosdrykki. Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri og muna að koma í góðum skóm.

Með bestu kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top