Kæru foreldrar/forráðamenn,
Á föstudaginn næstkomandi eru leikjadagar 6 – 9 ára nemenda okkar.
Við skellum okkur á Klambratúnið og förum í skipulagða leiki.
Við ætlum hvorki að láta veður né vind stoppa okkur og biðjum ykkur að klæða börnin eftir veðri þennan dag, því við verðum mikið úti.
Þegar við komum tilbaka verða grillaðar pylsur á skólalóðinni. Allir fá pylsur, þannig að ekki þarf að taka með hádegisnesti.
Ekki er gert ráð fyrir foreldrum, hins vegar mun foreldrafélagið mæta og sjá um grillstemninguna .
Kærar kveðjur
Lára