Leikjadagurinn var haldinn í dag á Klambratúni í dag 28. maí þrátt fyrir hellidembu sem steyptist yfir okkur í þann mund sem krakkarnir voru á leið í frímínútur.
Enginn er verri þó hann vökni var mantran okkar þegar skundað var af stað, en auðvitað birti til rétt á meðan krakkarnir okkar þreyttu hinar ýmsu þrautir á Klambratúni, þrautir sem okkar frábæra íþróttateymi var búið að stilla upp á svæðinu. Með fréttinni er einmitt mynd af einum íþróttakennaranum sem lenti í úrhellinu þegar hann undirbjó herlegheitin.
Foreldrafélagið stóð svo fyrir grillveislu á skólalóðinni eftir Klambratún og kunnum við þeim foreldrum sem lögðu hönd á plóg bestu þakkir fyrir.
Kær kveðja,
starfsfólk og foreldrafélag Ísaksskóla
