Litlu jólin

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Litlu jólin eru á morgun (fimmtudaginn 17. desember) í skólastofum. Þetta er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt.

Við minnum ykkur líka á að fara í gegnum óskilamunina á morgun. Það leynist ýmislegt í körfunum á göngunum.

Með hlýjum kveðjum,

Starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top