Litlu jólin 18. des

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Litlu jólin eru á morgun (fimmtudaginn 18. desember) í skólastofum. Þetta er  venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með sparinesti og drykkjarföng í fernum (röradrykk).  Ekkert gos er leyfilegt.

Við minnum ykkur líka á að fara í gegnum óskilamunina á morgun. Það leynist ýmislegt í körfunum á göngunum.

Með hlýjum kveðjum,

Starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top