Maí og júní í Ísaksskóla

Skipulagsdagur verður föstudaginn 13. maí. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag.

Leikjadagur verður föstudaginn 21. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti krull, Baldur og Kristinn íþróttakennarar skipuleggja. Við færum daginn til ef veðrið verður eitthvað að stríða okkur.

Uppstigningadagur er fimmtudaginn 26. maí og er almennur frídagur.

Annar í hvítasunnu er mánudaginn 6. júní og er almennur frídagur.

Síðasti kennsludagur er miðvikudagurinn 8. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur. Skólaárinu lýkur með skólaslitum kl 13:30 og þá er foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur velkomnar í skólann að hlýða á tröppusöng. Við sendum nánara skipulag þegar nær dregur. Engin frístund er að skólaslitum loknum.

Sumarskólinn hefst mánudaginn 13. júní.

Gleðilegt sumar,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top