Maí og júní í Ísaksskóla

Verkalýðsdagurinn er mánudaginn 1. maí og er almennur frídagur.

Skipulagsdagur verður þriðjudaginn 2. maí. Engin starfsemi er í Sunnuhlíð né Sólbrekku þennan dag.

Uppstigningadagur er fimmtudaginn 18. maí og er almennur frídagur.

Föstudaginn 19. maí er einnig frídagur í Ísaksskóla, enginn skóli og ekki starfsemi í Sunnuhlíð né Sólbrekku.

Leikjadagur verður föstudaginn 26. maí. Farið verður á Miklatún og farið í leiki sem Matti krull, Kristinn og Sóley Ósk skipuleggja.

Annar í hvítasunnu er mánudaginn 29. maí og er almennur frídagur.

Síðasti kennsludagur er miðvikudagurinn 7. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur til kl. 13:30. Skólaárinu lýkur með skólaslitum. Foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur eru velkomnar í skólann að hlýða á tröppusöng.

Engin frístund er að skólaslitum loknum.

Sumarskólinn hjá 5 og 6 ára hefst mánudaginn 12. júní.

Gleðilegt sumar,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top