Kæru foreldrar/forráðamenn,
Apríl mánuður er nú liðinn með takmörkuðu skólahaldi eins og í mars mánuði.
Maí reikningar hafa nú verið sendir út með afslætti vegna þessara breytinga í apríl.
Í maí verður allt skólahald með eðlilegum hætti eins og var fyrir 16. mars og verða júníreikningar hefðbundnir.
Starfsfólk skólans vill þakka öllum fyrir samstarfið á þessum skrítnu tímum.