Mars í Ísaksskóla

Sprengidagur og öskudagur eru þriðjudaginn 1. og miðvikudaginn 2. mars. Þeir eru að jafnaði hefðbundnir skóladagar hjá okkur. Þó viljum við benda á að á:

sprengidag – saltkjöt og baunir, túkall.
öskudag mega börnin koma í búningum í skólann. Við viljum biðja ykkur um að geyma öll vopn heima. Kötturinn verður sleginn úr tunnunni strax um morguninn svo það er mikilvægt að koma tímanlega í skólann. Eftir skóla tekur frístundin við eins og aðra daga.

Dagur stærðfræðinnar er mánudaginn 14. mars.

Þemadagar verða miðvikudaginn 16. og fimmtudaginn 17. mars.

Með bolludagskveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top