Í gær voru nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur afhent við hátíðlega athöfn í Fellaskóla.
Mart í 9 ára HÞ var fulltrúi okkar en ásamt honum fengu 32 börn frá jafn mörgum skólum afhent verðlaunin.
Mart er vel að verðlaununum kominn. Hann er fyrirmyndar nemandi sem hefur náð mjög góðum tökum á íslensku og öllu öðru námi. Hann er sterkur félagslega og bekkjarsystkini hans bera mikla virðingu fyrir honum.
Við óskum Mart og fjölskyldu hans hjartanlega til hamingju.