Kæru foreldrar/forráðamenn.
Af gefnu tilefni viljum við minna á að það eru þrjú nesti á dag í sumarskólanum.
Byrjum á ávaxtabita/jógúrt kl. 10, hádegismatur og svo síðdegishressing.
Leyfilegt er eins og áður sagði að koma með röradrykk, einn til tvo á dag. Svo er nauðsynlegt að vera með vatnsbrúsa meðferðis.
Minnum á hollustuna – það þarf holla orku í lítið fallegt fólk 🙂
Kærar kveðjur úr sumarskólanum