Nýr opnunartími á morgnana í 5 ára

Kæru foreldrar/forráðamenn 5 ára barna,

Til þess að einfalda lífið í byrjun skóladags á meðan takmörkun á skólastarfi stendur höfum við ákveðið að opna 5 ára deildina kl. 8:15 frá og með morgundeginum, 10. nóvember til og með 17. nóvember eða eins lengi og þurfa þykir. Þið getið því komið með börnin beint að 5 ára innganginum. Þar verður Alexandra og leiðir umferðina inn í stofurnar. Skóladagurinn hefst svo formlega kl. 8:30 eins og alla daga.

Allir fullorðnir þurfa að muna að vera með grímurnar.

Með ljúfum kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top