Öskudagshátíð og vetrarfrí

Kæru vinir, 

mikið óskaplega er gaman að hafa börnin ykkar á Öskudaginn og taka þátt í gleðinni með þeim! 

Það var glatt á hjalla í dag sem endranær þegar árleg Öskudagshátíð fór fram í skólanum. Bjarni töframaður mætti og hélt góða skemmtun fyrir börnin og svo var kötturinn sleginn úr tunnuni að vanda. 

Sjá má myndaalbúm dagsins með því að [smella hér] 
Einnig minnum við facebook síðu skólans http://www.facebook.is/isaksskoli  en þar má sjá skemmtileg myndbönd af hátíðinni í dag 🙂

Nú fer í hönd vetrarfrí í Ísaksskóla og stendur það yfir dagana 19. og 20. febrúar (fimmtudag og föstudag).
Athugið að þessa daga er engin kennsla eða gæsla. 

Kennsla hefst aftur mánudaginn 23. febrúar kl. 8:30

Góðar stundir.

Scroll to Top