Samræmd próf á morgun og föstudag – Söngur á sal fellur niður á föstudag

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Á morgun (fimmtudag) og á föstudag þreyta nemendur 9 ára EBH og 9 ára BVK samræmd próf. Vinsamlega gangið hljóðlega um og notið eingöngu neðri ganginn til kl. 12:00 báða dagana. Vegna prófanna verður ekki söngur á sal á föstudagsmorgun.

Báða dagana verða 8 ára bekkirnir í ferðum úr húsi á meðan á prófunum stendur.

Með hlýjum kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top