September í Ísaksskóla

Bekkjamyndir verða teknar þriðjudaginn 22. (7 ára og 8 ára), miðvikudaginn 23. (5 ára) og fimmtudaginn 24. september (6 ára og 9 ára).

Samræmd próf verða í íslensku miðvikudaginn 30. september og í stærðfræði fimmtudaginn 1. október hjá 9 ára. Á meðan á samræmdu prófunum stendur fara þeir bekkir sem eru á sama gangi í skipulagðar vettvangsferðir báða dagana.

Þar sem hefðbundnar foreldrakynningar fara ekki fram munum við þess í stað senda gagnlega punkta inn í skólaárið í vikunni.

Með skólakveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top