September í Ísaksskóla

Skólasundið hjá 6-9 ára hófst þriðjudaginn 27. ágúst og verður í Sundhöll Reykjavíkur eins og áður.

Ólympíuhlaup ÍSÍ verður haldið föstudaginn 6. september undir styrkri stjórn Irmu, Matta krull og Sóleyjar Óskar.

Söngur á sal verður í fyrst sinn föstudaginn 6. september. 5 ára börnin bætast í hópinn seinna.

Bekkjarmyndir verða teknar 24.-26. september.

Farið verður í fjallgöngu með stuttum fyrirvara þegar og ef sú gula lætur sjá sig.

Við höldum upp á fjölbreytileikann í lok september og föstudaginn 27. september ætlum við að fagna honum í söng á sal með því að koma klædd í litum regnbogans þann dag.

Með skólakveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla