Síðbúinn þrettándi í Ísaksskóla – töfrar, tónlist og gleði

Á föstudaginn var hélt Ísaksskóli glæsilegan og líflegan síðbúinn þrettánda, þar sem skólinn fylltist af nemendum, foreldrum og fjölskyldum þeirra ásamt starfsliði skólans. Stemningin var hátíðleg og hlý þegar allir komu saman til að kveðja hátíðirnar á fallegan og þjóðlegan hátt.

Álfakóngur og álfadrottning voru að sjálfsögðu heiðursgestir dagsins. Þau sátu saman í miðju mannhafi og fylgdust með sjö ára nemendum sem skörtuðu sínu fegursta, dönsuðu álfadans af miklum tilþrifum og sungu af einlægni og gleði.

Börn úr öllum árgöngum tóku síðan undir og sungu fjölbreytt og falleg þrettándalög. Má þar nefna „Stóð ég úti í tunglsljósi“, „Ólaf liljurós“, „Eru álfar kannski menn?“, „Máninn hátt á himni skín“ og „Nú er glatt hjá álfum öllum“. Söngurinn fyllti skólann og skapaði hlýja og töfrandi stemningu.

Í lok hátíðarinnar gengu nokkrir starfsmenn skólans út á skólalóðina þar sem tendruð voru bleik blys samkvæmt góðri hefð. Blysin lýstu upp veturinn og settu fallegan endapunkt á hátíðina.

Scroll to Top