Skóladagatal leiðrétt

Kæru foreldrar/forráðamenn

Skóladagatal Ísaksskóla 2017-2018 hefur vegna mistaka verið ofreiknað um einn dag. Þetta leiðréttist þannig að jólatrésskemmtun og þar með síðasti skóladagur fyrir jólafrí verður 20. desember í staðinn fyrir 21. desember.

Nýju útgáfuna af skóladagatalinu má sækja hér
og hefur einnig verið uppfærð hér á vefnum.

Eins og í fyrra verður þó opið í Sólbrekku 21. og 22. desember fyrir þau 5 ára börn sem ekki hefja jólafríið strax.

Bestu kveðjur,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir
Skólastjóri

Scroll to Top