Elskulegu foreldrar/forsjáraðilar.
Síðasti kennsludagur er föstudaginn 6. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur til kl. 13:20 hjá 5 ára og til kl. 14:00 hjá 6-9 ára. Þá hefjast skólaslit. Foreldrar/forráðamenn og fjölskyldur eru velkomnar í skólann að hlýða á tröppusöng. Við vonumst svo bara eftir eintómri sól og sælu við skólaslitin og að sem flestir geti notið dagsins með okkur.
Kl. 13:30 Tröppusöngur 5 ára
Kl. 14:00 Tröppusöngur 6-9 ára
Engin frístund er að skólaslitum loknum.
Sumarskólinn hjá 5 og 6 ára hefst miðvikudaginn 11. júní.
Með ljúfum kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla
