Heilir og sælir kæru foreldrar og aðstandendur,
Skólasundið hefst þriðjudaginn 1. september hjá 6 ára og er samkvæmt stundatöflu í vikunni hjá öllum árgöngum skólans.
Það þarf að hafa meðferðis sundföt, sundgleraugu og handklæði á þeim dögum sem skólasundið er í stundatöflunni.
Ekki hika við að hafa samband við mig ef það koma upp einhverjar spurningar og eins ef eitthvað kemur til yfir skólaárið sem þið þurfið að ræða við mig.
Mínar alla bestu sundkveðjur,
Hulda Bjarkar, sundkennari