Söngur á sal fram á sumar

Kæru foreldrar/forráðamenn

Skipulagið á söngstundunum okkar á föstudögum verður á þennan veg fram á vor:

Föstudagana 22. apríl, 6. maí og 27. maí bjóðum við oddatölum, foreldrum 7 & 9 ára bekkja, auk foreldrum tveggja fimm ára bekkja (IHJ og MBD, stofum 11 og 13).

Sléttar tölur; foreldrum 6 & 8 ára bekkja, auk foreldrum tveggja fimm ára bekkja (HÞ og BP stofum 10 og 12), verður boðið að koma föstudagana 29. apríl, 20. maí og 3. júní.

Við minnum ykkur á að við klöppum ekki á milli laga í söngnum en alltaf í lokin. Töfrarnir í þögninni á milli laga eru dásamlegir.

Kær kveðja,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top