Sumarskóli Ísaksskóla

Umsókn um sumarskólann 2025

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Á sumrin gefst nemendum í 5 og 6 ára bekkjum tækifæri til að sækja Sumarskóla Ísaksskóla.

Sumarskólinn hefst í byrjun júní, örfáum dögum eftir skólaslit og stendur fram í lok júlí.

Í Sumarskólanum eru íþróttir, leikir og styttri ferðir alls ráðandi. Það er starfsfólk skólans
sem heldur utan um starf Sumarskólans. Hægt er að skrá nemendur í eina viku í senn.
Að sjálfsögðu geta nemendur verið hjá okkur allar sex vikurnar.  Heitur matur verður á
boðstólnum í hádeginu  frá Krúsku.

————————————————————————————————-

OPNAÐ HEFUR VERIÐ FYRIR UMSÓKNIR Í SUMARSKÓLA 2025

Umsókn um sumarskóla 6 ára og 5 ára utan Reykjavíkur.

Staðfesting á sumarskóla 5 ára úr Reykjavík.

Vika 1  11. júní – 13. júní  3 dagar
Vika 2  16. júní – 20. júní  4 dagar
Vika 3  23. júní – 27. júní  5 dagar
Vika 4  30. júní – 4. júlí  5 dagar
Vika 5  7. júlí – 11. júlí  5 dagar
Vika 6  14. júlí – 17. júlí  4 dagar

————————————————————————————————-

Opnunartími:
Húsið er opið frá 8:00 til 17:00 mán.-fim. og til 16:00 á föstud.
Dagskráin er í gangi á milli 9:00 og 16:00.
Ekki er ætlast til að börnin séu lengur en 8 tíma á dag.

Matartími:
Þátttakendur þurfa að koma með ávaxtabita og síðdegishressingu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 553 2590
Einnig er hægt að senda póst á lara@isaksskoli.is

sumarskoli_collage