Það má segja að 5 ára börnin okkar hafi krúttað yfir sig á bekkjarskemmtun í gær 27. maí.
Prúðustu og bestu börnin fluttu Þúsaldarljóð af þvílíkri innlifun að það snerti hjartastreng allra sem á hlýddu. Hópurinn hefur vissulega upplifað eldvirknina á Reykjanesskaganum og skilja vel kraftinn þegar eldgos brýst fram og skiluðu því laginu um eldinn einstaklega vel.
Starfsfólk Ísaksskóla