Heilsugæsla Ísaksskóla heyrir undir Heilsugæslu Hlíðasvæðis.
Skólahjúkrunarfræðingur er Anna María Guðnadóttir.
Viðvera hennar er á fimmtudögum og föstudögum kl. 8:30 – 11:00.
Á þessum tíma er einnig er hægt að ná í hana í síma 553-2590 eða á netfangið isaksskoli@heilsugaeslan.is .
Skólaheilsugæslan er framhald af ung- og smábarnavernd og sér um fræðslu, reglubundnar skoðanir og bólusetningar.
REGLUBUNDNAR SKOÐANIR OG BÓLUSETNINGAR
- 1. bekkur (6 ára):
Nemendur eru hæðar- og þyngdarmældir og sjónprófaðir. Einnig er gert lífstílsmat.
Þeir sem ekki hafa farið í fjögurra ára skoðun á heilsugæslustöð fá endurbólusetningu gegn barnaveiki, stífkrampa og kíghósta (ein sprauta). - 4. bekkur (9 ára):
Nemendur eru hæðar- og þyngdarmældir og sjónprófaðir. Einnig er gert lífstílsmat.
Fylgst er með nemendum í öðrum árgöngum eftir þörfum.
FRÆÐSLA/HEILBRIGÐISHVATNING/FORVARNIR
Skólaheilsugæslan sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Öll tækifæri sem gefast eru nýtt til að fræða nemendur og vekja þau til umhugsunar og ábyrgðar á eigin heilsu. Foreldrar eru hvattir til að leita eftir ráðgjöf hjúkrunarfræðings varðandi vellíðan, andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði barnsins.
FRÍAR TANNLÆKNINGAR FYRIR ÖLL 6-17 ÁRA BÖRN
Vakin er athygli á því að tannlækningar 6-17 ára barna eru greiddar að fullu af Sjúkratryggingum, að frátöldu 2.500 kr. árlegu komugjaldi. Ef barnið þitt hefur ekki farið í tanneftirlit á síðustu tólf mánuðum ertu beðin/n um að panta tíma hjá tannlækni sem fyrst. Meiri upplýsingar má nálgast á vefsíðunni. http://heilsugaeslan.is/fraedsla/tannvernd/.
SVEFN, NESTI OG SKJÓLFATNAÐUR
Reglulegur og nægjanlegur svefn er mikilvægur fyrir heilsu og þroska barna. Sex ára börn þurfa t.d. að sofa a.m.k. 10-12 klst. á nóttu. Skóladagurinn er langur, mikilvægt er að borða vel áður en farið er í skólann og hafa að auki með sér hollt og gott nesti. Einnig er nauðsynlegt að nemendur séu í góðum skjólfatnaði og með húfu/eyrnaband og vettlinga.
VEIKINDI OG ÓHÖPP
Veitt er fyrsta hjálp í skólanum og minniháttar slysum sinnt. Þurfi barnið að fara á heilsugæslustöð/slysadeild er æskilegt að foreldrar/forráðamenn fari með barnið og er því mikilvægt að skólinn hafi símanúmer þeirra bæði heima, í farsíma og í vinnu. Ekki er ætlast til að slysum sem gerast utan skólatíma sé sinnt í skólanum.
Ef barn er með greindan alvarlegan sjúkdóm sem getur stefnt heilsu/lífi þess í bráða hættu er nauðsynlegt að skólaheilsugæslan viti af því. Hér er átt við sjúkdóma eins og sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma.
LÚSIN
Lúsin kíkir alltaf reglulega í heimsókn yfir skólaárið. Mjög mikilvægt er að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega, t.d. vikulega. Best er að bleyta hárið og setja næringu í og kemba hárið með næringunni í,en allar frekari leiðbeiningar er að finna á vef landlæknisembættisins www.landlaeknir.is.
Með kveðju og ósk um gott samstarf,
Anna María Guðnadóttir,
skólahjúkrunarfræðingur