Frumábyrgð á uppeldi hvílir á foreldrum. Hlutur grunnskólans felst einkum í því að sjá nemendum fyrir formlegri fræðslu og taka þátt í félagslegri mótun þeirra.
Þetta sameiginlega verkefni heimila og skóla kallar á náin tengsl, gagnkvæmt traust, gagnkvæma upplýsingamiðlun, samábyrgð og samvinnu. (Aðalnámskrá grunnskóla)
Stundvísi
Nemanda ber að mæta stundvíslega í skólann.
Fjarvistir
Fjarvistir og veikindi skal tilkynna til skólans eins fljótt og auðið er. Alltaf þarf að sækja um leyfi fyrir nemanda. Ef leyfið stendur lengur en tvo daga þarf að sækja um það sérstaklega til skólastjóra.
Ef nemandi á að vera inni í frímínútum þarf hann að koma með skriflega beiðni um það að heiman.
Hlýðni – kurteisi
Nemanda ber að koma fram af prúðmennsku og háttvísi og sýna almenna kurteisi. Nemandi á að hlýða skilyrðislaust kennurum og öðru starfsfólki skólans, bæði í kennslustofu og á göngum, sem og úti á skólalóð.
Virðing
Nemandi skal sýna sjálfum sér, bekkjarsystkinum og skólasystkinum virðingu, sem og öllu starfsfólki skólans.
Umgengni
Nemandi á að ganga vel og snyrtilega um skólann og umhverfi hans.
Hlaup, háreysti og óþarfa læti á göngum eru með öllu óheimil.