Skóli Ísaks Jónssonar er sjálfseignarstofnun sem sinnt hefur markvissri kennslu 5 ára barna og menntun yngstu nemenda grunnskólans frá stofnun hans árið 1926.

Skólinn fer í öllu að grunn- og leikskólalögum og því er Aðalnámskrá grunnskóla og Aðalnámskrá leikskóla það leiðarljós sem fylgt er við gerð skólanámskrár.

Skólinn er fyrir 5 ára börn og nemendur 6, 7, 8 og 9 ára bekkja.

Fjöldi nemenda í hverjum bekk er að jafnaði 17 – 21, en geta þeir í einstökum tilfellum verið færri eða fleiri.

Það er meginmarkmið Skóla Ísaks Jónssonar að vera ávallt í fremstu röð grunnskóla í landinu á yngsta aldursstiginu. Nemendur í 4. bekk hafa almennt staðið sig vel á samræmdum prófum og að jafnaði verið yfir landsmeðaltali.

Skólinn leggur metnað í kennslu í íslensku og stærðfræði. Auk þess er lögð rík áhersla á tónlist og myndmennt, leikfimi og útiveru.

Í skólanum er lögð áhersla á söng. Nemendur læra nýja söngtexta í hverri viku.  Samsöngur nemenda í sal skólans er tvisvar í viku og eru foreldrar velkomnir.

Söngurinn styður vel við lestrarnám barnanna og eykur málskilning þeirra og orðaforða.

Í skólanum eru heilbrigðir lífshættir hafðir að leiðarljósi. Lögð er áhersla á jákvætt lífsviðhorf og að styrkja sjálfsmynd barnanna. Við viljum mæta börnunum þar sem þau eru stödd og markvisst leiða þau áfram í átt til aukinnar færni og þroska.

Faglegur metnaður er í fyrirrúmi í skólastarfinu. Við leggjum áherslu á að kenna nemendum markviss og öguð vinnubrögð og við viljum hafa vinnufrið í skólastofunni.

Skóli Ísaks Jónssonar

Skrifstofa skólans

Opin virka daga frá kl 8:00 – 16:00
Upplýsingar um skólagjöld má finna hérna

Hljóðvarp

Sigríður Anna skólastjóri Ísaksskóla var gestur hjá Sirrý á Sunnudagsmorgni þann 19. janúar 2014.

Lestur á gömlum grunni

Viðtal sem birtist í Morgunblaðinu við Sigríði Önnu Guðjónsdóttur skólastjóra, um íslensku- og lestarkennslu í Ísaksskóla.

Scroll to Top