Ágætu foreldrar/forráðamenn,
Nágrannar okkar hafa haft samband við skólann og eru áhyggjufullir yfir umferðaröngþveitinu og hættunni sem skapast hér fyrir utan á morgnana. Við viljum minna ykkur á að draga úr hraðanum og leggja ekki bílunum upp á gangstéttir, hraðahindranir eða inn á lóðir nágranna okkar þegar þið komið með börnin í skólann. Hægt að leggja upp við HÍ (Kennaraháskólann) og rölta hingað í rólegheitunum ef stæði eru af skornum skammti.
Með samtakamætti tekst þetta hjá okkur,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir