Umferðin við skólann og raðirnar á morgnana

Kæru foreldrar/forráðamenn

Enn og aftur þarf ég að minna ykkur á hætturnar sem skapast við skólann vegna umferðarinnar þessa dagana. Við viljum biðja ykkur um að leggja bílunum í viðurkennd stæði á morgnana, aldrei uppi á gangstéttum eða eyjum. Lögreglan sektar óhikað eins og einhverjir hafa þegar lent í. Stæði eru í Bólstaðarhlíðinni, Skaftahlíðinni, Stakkahlíðinni og á bílastæðunum við Menntavísindasvið.

Þeir sem eru ekki í morgungæslunni eiga að fara í raðirnar sínar úti á skólalóð.

Stöndum nú saman og förum eftir reglunum!

Sigríður Anna Guðjónsdóttir

Scroll to Top