Kæru foreldrar/forsjáraðilar.
Í morgun upplifðum við yndisstund í morgunsárið þegar Una Torfadóttir heiðraði okkur með nærveru sinni og tók lagið með okkar allra besta fólki. Það var undurfalleg orka í loftinu og ekki laust við að manni vöknaði um augu við hlustunina.
Myndband af söngnum má finna á læstu svæði á heimasíðunni okkar hér.
Kær kveðja úr Ísaksskóla