Vortónleikar kórsins okkar

Vortónleikar barnakórs Ísaksskóla voru haldnir 6. maí með glæsibrag. Á þessari uppskeruhátíð kórsins mátti finna lög eftir Auði Guðjohnsen, Aðalstein Ásberg og Ólaf Hauk Símonarson ásamt mörgum öðrum fallegum lögum. 9 ára útskriftarhópurinn söng til dæmis lagið Þannig týnist tíminn eftir Bjartmar Guðlaugsson og endaði svo allur kórinn á að syngja Þetta er yndislegt líf í þýðingu Kjartan Hreinssonar. Á uppstigningardag fékk svo kórinn stórskemmtilegt tækifæri að koma fram á Sumarhátíð Skoppu og Skrítlu í Húsdýra -og fjölskyldugarðinum. Stóðu börnin sig með einstakri prýði og fylltu gesti af sumri og hlýju í hjartað.

Scroll to Top