Desember í Ísaksskóla

Kirkjuferð er miðvikudaginn 7. desember. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans. Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.

Þeir foreldrar/forráðamenn sem vilja ekki að börnin þeirra fari í kirkjuna geta haft samband við Láru á skrifstofunni eða umsjónarkennarann. Allir verða komnir til baka í skólann um kl. 10.

Jólasveinahúfudagur verður föstudaginn 9. desember. Þá mega allir nemendur koma með húfuna í skólann.

Litlu jólin eru mánudaginn 19. desember í skólastofum. Þann dag er venjulegur kennsludagur en nemendur mega koma með smákökur og drykkjarföng í fernum (röradrykk) í aukanesti. Ekkert gos er leyfilegt.

Jólatrésskemmtanir eru þriðjudaginn 20. desember. Hið fyrra frá kl. 10:00-11:30 (mæting kl. 09:45) og hið seinna frá kl. 12:00-13:30 (mæting kl. 11:45). Nemendur safnast saman í skólastofunum sínum og ganga svo með sínum kennara að trénu í salnum. Engin kennsla eða gæsla er þennan dag og því miður er ekkert pláss fyrir foreldra eða vini á þessum jólatrésskemmtunum.

Kl. 10:00-11:30

5 ára EE
5 ára BP
6 ára MBD
6 ára IHJ
7 ára SÓL
8 ára KF
9 ára BVK

Kl. 12:00-13:30

5 ára II
5 ára ÞEK
6 ára HÞ
7 ára AO
7 ára ALH
8 ára EBH
9 ára MÓH

Opið verður í Sólbrekku (fyrir 5 ára börnin sem ekki byrja í jólafríi strax) 21.-22. desember og til hádegis 23. desember. Lokað verður á milli hátíðanna.

Skólahald hefst á ný miðvikudaginn 4. janúar.

Gleðilega aðventu,
starfsfólk Ísaksskóla

Scroll to Top