Matseðill mánaðarins

Boðið er upp á gjaldfrjálsar heitar máltíðir í skólanum fyrir grunnskólabörn. Maturinn kemur frá Krúsku sem kappkostar að vera ávallt með hollan og bragðgóðan mat. Fyrir 5 ára börn er verðið 16.990 kr. á mánuði.

Nemendur koma með ávexti/grænmeti að heiman fyrir morgunnesti og þurfa einnig að koma með nesti fyrir eftirmiðdags hressingu.

Við minnum á mikilvægi þess að börnin komi einungis með hollan og góðan mat.

Sætmeti er ekki leyft t.a.m. orkustangir og þess háttar nema á sérstaklega tilkynntum dögum. Við mælumst til þess að nemendur séu ávallt með vatnsbrúsa í töskunni.

Smelltu hér ef þú vilt sækja um breytingu á mataráskrift barnsins þíns.

Hægt er að hlaða matseðli mánaðarins niður á skjali hér   | sækja skrá


Apríl 2025Almenn áskrift 
1.Kjúklinganúðlupottréttur með karrý kókós sósu, grænmeti og rófubitum
2.Soðinn fiskur með lauksmjöri, kartöflum og rúgbrauði
3.Chili con carne með grjónum, nachos og salati
4.Grænmetis súpa með heimabökuðu brauði smjöri og ávöxtur
7.Steiktur fiskur með kartöflum, kokteilsósu og ávöxtur
8.Grænmetislasagne með brauði og salati
9.Plokkfiskur með salati, rúgbrauði og smjöri
10.Spagettí bolognese með parmesan og hvítlauksbrauði
11.Grjónagrautur með kanil, rúsínum og slátri
22.Kjötbollur með brúnni sósu, kartöflur og rauðkáls salat
23.Fiskur með heimalagaðri tómatsósu, kartöflum, rúgbrauði og smjöri
24.Sumardagurinn fyrsti
25.Grjónagrautur með kanil, rúsínum og slátri
28.Kornflex fiski bollur með byggi, rauðri sósu og salati
29.Beikon pasta með hvítlauksbrauði
30.Soðinn fiskur með kartöflum, tómatsósu, rúgbrauði og smjöri