Það var ánægjulegt að sjá afrakstur þemadaganna lifna við í samveru barna, foreldra/forsjáraðila og gesta yfir kaffi og kleinum í morgun.
Þemadagarnir fóru fram dagana 11.-13. maí og voru tileinkaðir 100 ára afmæli Ísaksskóla. Yfirskrift daganna var fortíð, nútíð og framtíð. Börnin unnu fjölbreytt verkefni þar sem saga skólans, skólastarfið í dag og hugmyndir um framtíð Ísaksskóla fengu að njóta sín. Við látum fylgja með myndbrot sem Bragi Þór Hinriksson, foreldri í Ísaksskóla og kvikmyndagerðarmaður, tók í lok þemadaganna. Þar má sjá börnin mynda töluna 100 úti á skólavelli til að fagna þessum merku tímamótum í sögu skólans. Nýjar myndir frá þemadögunum og deginum í dag eru líka komnar inn á myndasafnið á heimasíðunni (Lykilorðið er Myndasafn#25)
Vimeo: https://vimeo.com/1192648282
Við munum halda áfram að fagna afmælisárinu í haust með fleiri uppákomum.







