Vefur skólans lá niðri í heila viku

Eins og margir hafa tekið eftir hefur vefur skólans legið niðri í heila viku. Vefurinn er vistaður hjá hýsingarfyrirtækinu 1984 sem varð fyrir alvarlegri tölvuárás í síðustu viku. Nú hefur starfsmönnum 1984 tekist að laga flesta hluti hjá sér og er vefur okkar kominn upp. Vefurinn verður hægur fyrst um sinn og mögulega verða einhver vandræði á skráningarformum. Enginn gagnaleki varð hjá okkur.

Fréttir af endurheimt vefhýsingarþjónustu frá 1984 kvöldið 26.11.2026:

Við erum nú að ljúka undirbúningi þess að koma öllum vefjum í hýsingu hjá 1984 aftur í loftið. Að óbreyttu gerum við ráð fyrir að fyrstu vefirnir verði aðgengilegir um kl. 21 í kvöld og að vefirnir komi síðan í loftið hver á fætur öðrum fram eftir nóttu. Eins og áður er um áætlaða tímasetningu að ræða og hún getur breyst eftir því hvernig vinnunni miðar. Við þökkum viðskiptavinum okkar kærlega fyrir ótrúlega þolinmæði, skilning og þann mikla stuðning sem okkur hefur verið sýndur undanfarna daga.

Scroll to Top