Tónlistargleði á söng á sal

Það var heldur betur líf og fjör á söng á sal í Ísaksskóla í dag!

Við fengum frábæran liðsauka við tónlistarflutninginn þegar tveir foreldrar úr skólasamfélaginu mættu og bættu við skemmtilegum tónum. Helga Margrét Marzellíusardóttir lék á slagverk og Úlfur Hansson á bassa, og saman við píanóleikinn skapaðist einstaklega skemmtileg stemning í salnum.

Það er alltaf jafn dýrmætt þegar foreldrar taka þátt í skólastarfinu og leggja sitt af mörkum til að skapa gleðilegar og eftirminnilegar stundir fyrir börnin.

Við færum Helgu Margréti og Úlfi okkar bestu þakkir fyrir frábært framlag og fyrir að fylla salinn af tónlist og gleði!  Svona stundir eru sannarlega það sem gerir skólasamfélagið okkar svo einstakt! 

Scroll to Top