Skólagjöld

Skólagjöld 2025-2026:

kr. 350.000,- fyrir 6-9 ára nemendur eða 35.000 á mánuði í 10 mánuði.
kr. 270.000,- fyrir 5 ára börn utan Reykjavíkur eða 27.000,- á mánuði í 10 mánuði.

Systkinaafsláttur í Ísaksskóla er 25% vegna barns nr. 2 í skólanum og 50% vegna barns nr. 3 í skólanum.
Upplýsingar um frístund og verðskrá þess má finna með því að smella hér.
Athugið að ef nemandi hættir í skólanum á skólaárinu skal samt greiða full skólagjöld fyrir allt árið.
Skólaárið er frá ágúst til júní.

Kennsla 5 ára barna er frá 8:30 – 13:20 og kennsla 6-9 ára barna er frá 8:30 – 14:00.

Forsjáraðilar 5 ára barna úr Reykjavík greiða skv. þjónustusamningi sem skólinn hefur gert við Reykjavíkurborg en þau eru frá apríl 2026:
kr. 17.584 á mánuði út skólaárið (matur og vistun að 36 tímum innifalin). Gjaldskráin fylgir nýrri gjaldskrá Reykjavíkurborgar og getur tekið breytingum á skólaárinu. Vistun upp að 36 tímum er gjaldfrjáls en fæðisgjald er kr. 17.584. Vistun upp að 38 tímum á viku kostar kr. 8.050 á mánuði, vistun upp að 40 tímum á viku kostnar kr. 20.700 á mánuði og vistun upp að 42,5 tímum á viku kostar 43.700 á mánuði. Almennt er ekki gert ráð fyrir lengri vistun en 42,5 tímum.

Umsókn fyrir afslátt einstæðra foreldra 5 ára barna sem er hér þarf að skila undirrituðu á skrifstofu skólans.

Fæðisgjald fyrir 5 ára börn utan Reykjavíkur er það sama eða 17.584 á mánuði. Uppsagnarfrestur er einn mánuður hið minnsta og skal uppsögn miðast við 1. hvers mánaðar.

Hádegismatur og ávaxtastund

Ávaxtastund er daglega rétt fyrir kl. 10:00. Nemendur koma með ávöxt eða grænmeti að heiman. Maturinn í hádeginu fyrir 6-9 ára er gjaldfrjáls samkvæmt ákvörðun yfirvalda. Þeir nemendur sem eru í frístund koma með hollt og gott eftirmiðdagsnesti.
Innritunargjald fyrir skólaárið 2025-2026 kr. 35.000,-
– innritunargjald er ekki endurgreitt, og kemur ekki til frádráttar á skólagjöldum.

Skólinn áskilur sér rétt til að breyta gjaldskránni með mánaðar fyrirvara.

Scroll to Top